Kallt land
Úti er kallt. Það rignir, snjóar og haglar. Allt í senn. Það skiptast á skin og skúrir. Skýin eru fastagestir en sóliin er spari. Oftar en ekki er dimmt og drungalegt, rétt eins og í hryllingsmynd. Það eru engin börn úti að leika sér, engir foreldrar að viðra hundinn sinn og engin gamalmenni í göngutúr. En það eru jepplingar og fólksbílar, mótórhljól og vörubílar sem aka um með hávaða og mengandi pústurör.
Úti eru fjöll og eyðilendi, mýri og grjót út um allt. Enginn fallegur, grasgrænn og líflegur gróður sem tekur vel á móti sumrinu. Því sumrið kemur ekki. Það er vetur allt árið í kring. Snjór og rigning, ský og myrkur. Búðirnar selja bara húfur, vettlinga. úlpur og ullarsokka.
Úti eru Evrópumenn. Þeir eiga evruna og góða veðrið.
Inni eru Íslendingar. Þeir vilja evruna og góða veðrið.
Nýlegar athugasemdir