Þar sem fjallalömbin beita

Árið 2008

Sæl öll! Bað WP að birta þetta 31. desember 2008 kl. 23:59 til að vera flottur á tímasetningunni en í rauninni er ég úti að horfa á flugelda þegar þetta droppar inn á síðuna svo ég á ekki gratz skilið fyrir tímasetninguna. Bara svo þið vitið.

…Eeeeen eins og Ríkisútvarpið og fleiri flottir fjölmiðlar ætla ég að fjalla um árið sem var að líða og taka út markverðustu atburðina.

  • 25. febrúar. Undrabarnið Bjarni Jens Kristinsson er krýndur skákmeistari Hellis 2008 – sá yngsti í sögu félagsins en Hellir var stofnað um það leyti sem drengurinn fæddist.
  • 2. júní. Bjarni og Gráni hittast í fyrsta sinn. Ástin leynir sér ekki og eiga þeir tveir farsælt sumar saman hjá Skógrækt Ríkisins á Hallormsstað þar sem þeir binda vinabönd til lífsstíðar.
  • 21. ágúst. Valdafíkn borgarfulltrúa Reykjavíkur nær hámarki þegar Hanna Birna tekur við sem fjórði borgarstjórinn á kjörtímabilinu.
  • 4. október. Damien Rice Fanclub litar heiminn – enn á ný sem enginn væri morgundagurinn.
  • 6. október. Aðalútibú Landsbankans í Austurstræti var lokað vegna aðstæðna á fjármálamarkaði. Þetta olli mikilli gremju meðal menntskælinga sem sóttu reglulega staðinn til að fá sér frítt kakó.
  • 21. desember. Jólaball Menntaskólans í Reykjavík. … Það var osom.

Ég þakka ykkur fyrir liðið ár og vona að 2009 verði jafn gott eða betra fyrir okkur öll.

Fjallið

Þegar Íslandsbanki tók upp nýtt nafn og lógó í Mars 2006 og kallaði sig Glitni kostaði það fyrirtækið hef ég heyrt 300 miljónir krónur. Nú ætla ég að gera það sama nema ég hef ekkert lógó að skipta út og engum peningum að sóa. Ég ætla einfaldlega að nefna fjölmiðil minn Fjallið.

Nafnið skírskotar í svo margt. Það fer ekki framhjá neinum á þessu hrjúfa landi að það eru fjöll út um allt, grjót, mýrlendi, vötn og lækir. Ekki skemmir heldur fyrir að lénið sem ég nota er fjall.org, en með því að bæta greininum við er ég að segja að ég sé aðalsíða fjallsins – hliðin sem allir sjá. Bróðir minn settist að í skugganum hinum megin fjallsins að rækta gúrkur, hann er gúrkubóndi púnktur net.
Svo megum við ekki gleyma Eyjunni. Með nafninu gefa þeir í skyn að þeir séu allsstaðar – á allri eyjunni og geta því tekið eftir öllu, en ég sé tiss við því. Ég er á fjallinu – þar sem ég sé allt og allir sjá mig.

Verið velkminn upp á Fjallið!

Tilkynning frá ritstjóra

Rétt í þessu barst okkur tilkynning frá ritstjóranum sem hann sagði brýnt að birta hið allra fyrsta. Því er hún er ekki ritstkoðuð heldur verður birt í heild sinni á ábyrgð ritstjóra.

Vegna umtal síðustu vikna um stöðu Ríkisútvarpsins á auglýsingarmarkaði og annarra einkarekinna fjölmiðla vill ég fyrir hönd þessa fjölmiðils taka það fram að staða okkar er mjög sterk. Verðum við ekki varir við minni eftirspurn eftir auglýsingum og reiknum við ekki með að þurfa að reka starfsfólk né standi í annars konar niðurskurði. Þótt samkeppnin er hörð á markaðinum mun ég ábyrgjast áframhaldandi fréttaflutning og halda áfram að birta efni í sama gæðaflokki og áður hefur þekkst. Munum við ekki lúta fyrir hnignandi krónu eða glæfrafjárfestum né kapítalístískum hugsunarháttum heldur stöndum við sterk saman með hagsmuni hins almenna skattgreiðenda að leiðarljósi.

Virðingarfyllst,
Bjarni Jens Kristinsson
ritstjóri bjarni.fjall.org

Heppni manns stolin í Garðabæ

Aðfaranótt fimmtudagsins 4. desember 2008 var brotist inn í íbúð í Garðabæ og heppni manns stolin. Engin ummerki eru um glæpin en fórnarlambið, sem ekki vill láta nafn sitt getið og verður kallaður Bjarni Jens Kristinsson, segist vera mjög gáttaður á þessu athæfi. Fjölmiðillinn bjarni.fjall.org náði tali af honum rétt í þessu.

“Ég verslaði sænskar krónur sl. mánudag þegar ég frétti að krónan ætti að fara á flot. Þegar ég vakna í morgun sé ég að íslenska krónan hafi styrkst umtalsvert þvert á allar spár og voru því þessi kaup afskaplega óheppileg. Ekki nóg með það, heldur datt ég um þröskuldinn og er kominn með skemmdar tær. Það var einmitt þá sem ég áttaði mig á heppni mín hafi verið stolin um nóttina. Hringdi ég strax í lögreglu og tilkynnti um þetta nema ég var náttúrulega inneignalaus og þurfti því að hlaupa út í búð að kaupa mér inneign en á leðinni renn ég í hálku og fótbrýt báðar fætur, hendur og bak.”

Segist hann vera á leið til Svíþjóðar um jólin svo framarlega sem hann verði búinn að ná fullum bata fyrir þann tíma. Að lokum vill Bjarni taka fram að hver sá sem hafi stolið heppni hans er vinsamlegast beðinn um að skila henni sem allra fyrst, enda telur hann að það litla sem til var af henni muni ekki gagnast neinum.

Bjarni Jens Kristinsson | bjarni.jens(hja)gmail.com | Fjallið is powered by Wordpress | WordPress Themes