Þar sem fjallalömbin beita

Umfjöllun* dagsins

Í daglegu tali er talað um Fjall og þykir sumum kannski ljótt að segja umFjöllun þar sem það lútir ekki almenn(ilegu)um íslenskum beygingarreglum. Ég bið ykkur að lifa vel og kíkja jafnvel upp á Fjall í heimsókn ef þið eigið e-ð vantalað þessa efnis.

Fjall þessa dags er Ísland – land hinna uppfokkaða hluta.
Forsagan er þekkt en veit fólk hins vegar hvað er í raun að gerast í undirheimum? Hver barði hvern og hversvegna? Hver var það sem seldi kókið og hver er heildsali e-pillanna? Ætla rétt að vona að þið vitið þetta ekki – enda ekkert merkilegt. Þegar þetta er skrifað eru komin 98 orð sem má teljast nokkuð gott miðað við síðustu skrif. Bind ég vonir við að fjöll komandi tíma verða stór, vegleg og farsæl.

Ekki þarf að segja neinum að mikil verðbólga er á Íslandi. Þegar ég smakkaði minn fyrsta íslenska snúð með súkkulaðikremi kostaði hann einn gullfísk. Í Korninu í Lækjargötunni hefur hann hækkað um annan – eða svo gott sem. Hvað er ást? Ekki meiða mig lengur!

Þetta eru kvalir sem rista djúpt. Í æsku var mér kennt að hér var allt gott og blessað, á Íslandi bjó hamingjusama fólkið og hér voru menn hraustir og tóku lýsi. Börnin léku sig á sprungnu götunum og enginn kippti sér upp við vind né rok.

Íslendingar hafa lengið vel gengið á tveimur fótum en mér líður eins og sumum hafi leiðst það og farið niður á alla fjóra. Við það hefur myndast örtöð á gangbraut Íslendinganna með þar til gerðum keðjuverkandi töfum og biðraðamyndun í framfaragöngu hópsins. Ekki er heldur hægt að finna þessa sökudólga því þeir skýla sér á bakvið mannþröngvan á öllum fjórum; hniprandi og skælandi.

Svo við tökum þetta saman.
- Fyrir útlendinga: Komið og heimsækið okkur! Við þurfum þess nauðsynlega upp á efnahaginn og þið verðið aldrei aftur leið því þið getið alltaf hugsað til aumingja Íslendinganna sem hafa það verr en þið!
- Fyrir Íslendinga: Flýið sökkvandi skip eða drullist til að fylla upp í götin!

*Halldór átti þennan, var ekki búinn að fatta þetta sjálfur :D Merci!

Bjarni Jens Kristinsson | bjarni.jens(hja)gmail.com | Fjallið is powered by Wordpress | WordPress Themes