Þar sem fjallalömbin beita

Orð mánaðarins

Orð júlímánaðar er þróttkraftur. Þetta er sennilegast nýyrði en þetta er fallegt orð og segir margt. Það felur bæði í sér merkingu þróttar og kraftar – sameinað í eitt orð. Það besta úr báðum áttum – sameinað í eitt orð. Allt – í eitt orð.

Föll

Ég hugsa stundum um fólk sem föll.

Með falli f er átt við forskrift eða reglu sem til hvers staks x í rauntalnamenginu Dm(f) lætur svara nákvæmlega eitt stak f(x) \in \!\, R. Þá kallast Dm(f) formengi fallsins en f(x) kallast fallgildi f í x. Varpmengi falls f er mengi allra fallgilda þess og er táknað Vm(f), þ.e.
Vm(f) = { y\in \!\,R | x\in \!\,Dm(f): y=f(x) }

Hver manneskja er sérstök og engar tvær eru eins svo það eru engin tvö föll eins. Það sem ég geri og segi við aðrar manneskjur er þá formengi fallsins. Ég er alltaf ég svo í megindráttum fá öll föll sömu x-in frá mér en þar sem hver manneskja er frábrugðin hver annarri fæ ég ekki alltaf sömu fallgildin, f(x), tilbaka. Ef x=”Hæ!” get ég fengið svör f(x) á bilinu f(x)\in \!\,["Hæ sæti... ;-) " ; "Fokkaðu þér!"]. Fólk er jú misjafnt.

Þá eru föllin með mismargar rætur.

Tala r\in \!\,R kallast rót eða núllstöð í margliðu P(x) ef P(r)=0.

“r”-in eru þá e-jir töfrafrasar til að ná fullkomlegu valdi á manneskjunni eða “núllað” hana út. Ræturnar eru jafn ólíkar og föllin sjálf. Það er varla að ég þekki mínar eigin rætur, hvað þá annarra manna.
Gröf fallanna væri þá persónuleikinn.

Graf falls f er mengi sem táknað er Gf og skilgreint með
Gf = { (x,y) | x\in \!\,Dm(f) ∧ y\in \!\,Vm(f) }

Ef maður þekkir allt grafið gæti maður sagt með fullkomnri vissu hvert fallgildi f í x=”Hæ!” væri – og allra annarra. Enn fremur þekkti maður allar rætur og maður hefði fullkomna stjórn á fallinu. Rétt eins og þekkja rétt nafn manns í Eragon bókunum.

Stærðfræði er nákvæm en lífið er kaos. Stærðfræði er svört og hvít en lífið er grátt. Stærðfræði er rétt en lífið er rangt.

Í stærðfræði er hægt að fá 10 og það er hægt að falla. En hvorugt er hægt í lífinu.

Tilgangur lífsins

er enginn. Við gerum bara það sem við þurfum að gera til að gera það sem viljum gera. Guð er ekki til og það er ekki líf eftir dauðann. AIDS er að drepa okkur og það er bara einn skóli í Gettu Betur.

- “If I crushed your vision of life, I’m sorry.”

Er hægt að leggja metnað í allt?

Ég er nefninlega ekki viss. Segjum að ég leggði metnað minn í stjórnmál, þyrfti ég þá ekki að nota daginn minn í að fylgjast með þinginu, halda mér up-do-date með Össuri, Geir, Guðna og Ingibjörgu auk þess kynna mér orkustefnu Búlgara og mynda svo mínar eigin skoðanir á öllu þessu shitti? Jafnframt því sem ég hætti að sofa til að hafa tíma í að leggja metnað minn í námið, en ég vill svo auðvitað líka leggja metnað minn í að vera með vinum mínum – talandi ekki um uppvaskið sem ég sæi um heima hjá mér.
Ætli ég hefði einhvern metnað eftir til að horfa á íslenska karlalandsliðið í handbolta gang berseksgang á Ólympíuleikunum?

Baseline: metnaður tekur tíma. Of mikill metnaður tekur of mikinn tíma.

Spakmæli indiána

“Aðeins eftir að síðasta tréð hefur verið fellt, aðeins eftir að síðasta áin hefur verið eitruð, aðeins eftir að síðasti fiskurinn hefur verið veiddur, aðeins þá munið þið skilja að ekki er hægt að borða peninga.”
(Indiánaspádómur)

Bjarni Jens Kristinsson | bjarni.jens(hja)gmail.com | Fjallið is powered by Wordpress | WordPress Themes