Athugum fyrst að 2009 = 7 x 7 x 41 og að næsta ár sem inniheldur frumþáttinn 13 verður árið 2015. Nóg að hlakka til, sjáiði til.
En komum okkur að efninu. Fréttamenn Fjallsins hafa unnið hörðum höndum frá því í byrjun janúar að leita uppi markverðustu atburðina hverju sinni og eru núna í sameiningu búnir að taka saman það helsta frá liðnu ári.
- 24. apríl. Sveit Menntaskólans í Reykjavík sigrar sveit MH í einvígi um Íslandsmeistaratitil framhaldsskólasveita í skák.
- 25. apríl. Loksins, loksins verða breytingar í ríkisstjórnarmálum og loksins, loksins fær vinstri- og miðjustjórn tækifæri til að „redda málunum“.
- 26. júní. Fjórmenningaklíkan hittist enn á ný, nú á áður óþekktum slóðum inn á milli trjáa Hallormsstaðaskógar. Segja gamlir menn að aldrei hefur jafn gott djamm sést á þessum afskekkta stað Íslandsbyggðar í manna minnum.
- 26. júlí. Bjarni Jens Kristinsson klárar skákmótið í Helsingør, Politiken Cup 2oo9, með glæsilegum endaspretti og vinnur til sigaverðlauna í sínum stigaflokki og endar eftstur Íslendinga á þessu opna Norðurlandamóti.
- 13. september. Menntaskólinn í Reykjavík hampar Norðurlandameistaratitli í framhaldsskólaskák.
- 7. nóvember. Íslenska liðið sýnir prýðisgóðan árangur í Þrándheimi á Eystrasaltskeppninni í stærðfræði.
- 17. nóvember. Herra Jens eyðir deginum á ströndinni í Tyrklandi við Miðjarðarhafið.
- 19. desmber. UÍA og Alcoa Fjarðarál úthluta afreksmannastyrk til skákmannsins Bjarna Jens Kristinssonar úr styrktarsjóðnum Spretti.
- 24. desember. Jólin, börnin góð. Jólin.
Gleðilegt nýtt ár! Fjallið óskar þér og þínum gleði og gæfu á nýju ári!

..STÆRÐFRÆÐI-HELGI!!
Djöfull er ég búinn að hlakka til!
er Menntaskólinn í Reykjavík. Gamall en nýr, góður, betri og bestur, lítill en samt stór – Menntaskólinn í Reykjavík. Allt – í einum skóla.
er á morgun. Loksins kominn tími til að vera ríkur.
…sól og sumar, sól og skin, sól og Sinni á móti Konna. Brátt fara endurnar á haf út, mömmurnar á eftir en feðurnir heima sofandi. Brátt staðnar heimurinn því brátt er maí í land runninn. Fögnum og gleðjumst, því maí er gulur mánuður, mánuður ástar og umhyggju, blómstrun og fegurðar. Í maí gerast merkir hlutir, gras fer að grænka og blómin springa, börn leika sér og börn eiga afmæli.
Gleðilegan síðasta apríl! Maí er á morgun!
Ég bið ykkur að lifa heil. Örvæntið ei þótt lífið virðist dapurlegt.
Myrkrið er alltaf dimmst fyrir sólarupprás. Það kemur dagur eftir þennan dag.
Við vitum að ástandið á Íslandi er dapurlegt.
Við lifum einungis á fornri frægð, í skugga sólarinnar.
Fyrir ykkur sem ætlið að leggja í ferðalag handan hólsins.
Vil ég segja það eitt: Góða ferð!
Farið og eigið góðan dag. Komið svo heim með sólskinsbros.
Smitið af ykkur, kætið okkur og syngið! Svo megið þið aftur fara.
Mun þá sá tími kominn vera. Er menn, dýr og plöntur sitja saman við borð.
Kallar þá yfir okkur, hátt að ofan, “Farið og gleðjist, eigið góðan dag!”.
Þá fóru allir. Og komu ekkert heim.
Því þá var sumar, og viti menn.
Hamingjan hafði talað.
Í daglegu tali er talað um Fjall og þykir sumum kannski ljótt að segja umFjöllun þar sem það lútir ekki almenn(ilegu)um íslenskum beygingarreglum. Ég bið ykkur að lifa vel og kíkja jafnvel upp á Fjall í heimsókn ef þið eigið e-ð vantalað þessa efnis.
Fjall þessa dags er Ísland – land hinna uppfokkaða hluta.
Forsagan er þekkt en veit fólk hins vegar hvað er í raun að gerast í undirheimum? Hver barði hvern og hversvegna? Hver var það sem seldi kókið og hver er heildsali e-pillanna? Ætla rétt að vona að þið vitið þetta ekki – enda ekkert merkilegt. Þegar þetta er skrifað eru komin 98 orð sem má teljast nokkuð gott miðað við síðustu skrif. Bind ég vonir við að fjöll komandi tíma verða stór, vegleg og farsæl.
Ekki þarf að segja neinum að mikil verðbólga er á Íslandi. Þegar ég smakkaði minn fyrsta íslenska snúð með súkkulaðikremi kostaði hann einn gullfísk. Í Korninu í Lækjargötunni hefur hann hækkað um annan – eða svo gott sem. Hvað er ást? Ekki meiða mig lengur!
Þetta eru kvalir sem rista djúpt. Í æsku var mér kennt að hér var allt gott og blessað, á Íslandi bjó hamingjusama fólkið og hér voru menn hraustir og tóku lýsi. Börnin léku sig á sprungnu götunum og enginn kippti sér upp við vind né rok.
Íslendingar hafa lengið vel gengið á tveimur fótum en mér líður eins og sumum hafi leiðst það og farið niður á alla fjóra. Við það hefur myndast örtöð á gangbraut Íslendinganna með þar til gerðum keðjuverkandi töfum og biðraðamyndun í framfaragöngu hópsins. Ekki er heldur hægt að finna þessa sökudólga því þeir skýla sér á bakvið mannþröngvan á öllum fjórum; hniprandi og skælandi.
Svo við tökum þetta saman.
- Fyrir útlendinga: Komið og heimsækið okkur! Við þurfum þess nauðsynlega upp á efnahaginn og þið verðið aldrei aftur leið því þið getið alltaf hugsað til aumingja Íslendinganna sem hafa það verr en þið!
- Fyrir Íslendinga: Flýið sökkvandi skip eða drullist til að fylla upp í götin!
*Halldór átti þennan, var ekki búinn að fatta þetta sjálfur
Merci!
Sæl öll! Bað WP að birta þetta 31. desember 2008 kl. 23:59 til að vera flottur á tímasetningunni en í rauninni er ég úti að horfa á flugelda þegar þetta droppar inn á síðuna svo ég á ekki gratz skilið fyrir tímasetninguna. Bara svo þið vitið.
…Eeeeen eins og Ríkisútvarpið og fleiri flottir fjölmiðlar ætla ég að fjalla um árið sem var að líða og taka út markverðustu atburðina.
- 25. febrúar. Undrabarnið Bjarni Jens Kristinsson er krýndur skákmeistari Hellis 2008 – sá yngsti í sögu félagsins en Hellir var stofnað um það leyti sem drengurinn fæddist.
- 2. júní. Bjarni og Gráni hittast í fyrsta sinn. Ástin leynir sér ekki og eiga þeir tveir farsælt sumar saman hjá Skógrækt Ríkisins á Hallormsstað þar sem þeir binda vinabönd til lífsstíðar.
- 21. ágúst. Valdafíkn borgarfulltrúa Reykjavíkur nær hámarki þegar Hanna Birna tekur við sem fjórði borgarstjórinn á kjörtímabilinu.
- 4. október. Damien Rice Fanclub litar heiminn – enn á ný sem enginn væri morgundagurinn.
- 6. október. Aðalútibú Landsbankans í Austurstræti var lokað vegna aðstæðna á fjármálamarkaði. Þetta olli mikilli gremju meðal menntskælinga sem sóttu reglulega staðinn til að fá sér frítt kakó.
- 21. desember. Jólaball Menntaskólans í Reykjavík. … Það var osom.
Ég þakka ykkur fyrir liðið ár og vona að 2009 verði jafn gott eða betra fyrir okkur öll.
Úti er kallt. Það rignir, snjóar og haglar. Allt í senn. Það skiptast á skin og skúrir. Skýin eru fastagestir en sóliin er spari. Oftar en ekki er dimmt og drungalegt, rétt eins og í hryllingsmynd. Það eru engin börn úti að leika sér, engir foreldrar að viðra hundinn sinn og engin gamalmenni í göngutúr. En það eru jepplingar og fólksbílar, mótórhljól og vörubílar sem aka um með hávaða og mengandi pústurör.
Úti eru fjöll og eyðilendi, mýri og grjót út um allt. Enginn fallegur, grasgrænn og líflegur gróður sem tekur vel á móti sumrinu. Því sumrið kemur ekki. Það er vetur allt árið í kring. Snjór og rigning, ský og myrkur. Búðirnar selja bara húfur, vettlinga. úlpur og ullarsokka.
Úti eru Evrópumenn. Þeir eiga evruna og góða veðrið.
Inni eru Íslendingar. Þeir vilja evruna og góða veðrið.
Elsku gamli Gráni.
Mig tekur það sárt. En ég er farinn núna, farinn í bili.
Ekki gráta Gráni. Ég kem aftur. Til að hitta þig.
Ég sakna þín. Og þú vonandi mín.
Við vorum tvíó. Af bestu gerð.
Minnig þín mun lifa hjá mér.
Bæði í anda og í pixlum.
Myndaalbúmið mitt af þér og mér.
Nýlegar athugasemdir