Þar sem fjallalömbin beita

Sjitt

Kreiiiiisí sjítt í gangi hérna! Eldur og bylting! Bekkir brenndir! Gluggar brotnir! Og laganna verðir grýttir! Hvað í djéskotanum gerðu þeir?! Nákvæmlega! Ekki neitt! Svo eru brjálaðir atvinnumótmælendur að kvarta undan piparúða!

Auðvitað á ríkisstjórnin að víkja eins og hún virðist vera að gera en ég bara .. löggan?! Almannaeigur?! Dabbelví-té-eff!

Einu rökin sem ég sá við að kjósa í vor voru að þá gæti ég lagt hönd á plóg við að losa okkur við Sjálfstæðisklíkuna og þar með seðlabankastjóra, en svo heyri ég að Geir segist vilja kjósa 9. maí. Já, 9. maí! Himnaríki og helvíti! Af öllum þeim mistökum sem hafa verið gerð á undanförnum árum þá eru þessi með þeim stærri.

Gratz á þann sem skilur afhverju.

Borgarstjórn enn á ný

Ég er farinn að halda að þetta fólk sé búið að selja sál sína til djöfulsins og samvisku sína í kaupbæti.

Bjarni Jens Kristinsson | bjarni.jens(hja)gmail.com | Fjallið is powered by Wordpress | WordPress Themes