Þar sem fjallalömbin beita

Heppni manns stolin í Garðabæ

Aðfaranótt fimmtudagsins 4. desember 2008 var brotist inn í íbúð í Garðabæ og heppni manns stolin. Engin ummerki eru um glæpin en fórnarlambið, sem ekki vill láta nafn sitt getið og verður kallaður Bjarni Jens Kristinsson, segist vera mjög gáttaður á þessu athæfi. Fjölmiðillinn bjarni.fjall.org náði tali af honum rétt í þessu.

“Ég verslaði sænskar krónur sl. mánudag þegar ég frétti að krónan ætti að fara á flot. Þegar ég vakna í morgun sé ég að íslenska krónan hafi styrkst umtalsvert þvert á allar spár og voru því þessi kaup afskaplega óheppileg. Ekki nóg með það, heldur datt ég um þröskuldinn og er kominn með skemmdar tær. Það var einmitt þá sem ég áttaði mig á heppni mín hafi verið stolin um nóttina. Hringdi ég strax í lögreglu og tilkynnti um þetta nema ég var náttúrulega inneignalaus og þurfti því að hlaupa út í búð að kaupa mér inneign en á leðinni renn ég í hálku og fótbrýt báðar fætur, hendur og bak.”

Segist hann vera á leið til Svíþjóðar um jólin svo framarlega sem hann verði búinn að ná fullum bata fyrir þann tíma. Að lokum vill Bjarni taka fram að hver sá sem hafi stolið heppni hans er vinsamlegast beðinn um að skila henni sem allra fyrst, enda telur hann að það litla sem til var af henni muni ekki gagnast neinum.

2 Comments

  • By benedikt, December 9, 2008 @ 17:52

    heppni thin er ad koma heim. Eg hef snuda!

  • By Halldór Eldjárn, December 9, 2008 @ 23:15

    Hahaha frábær saga! :D

Other links to this post

RSS feed for comments on this post. TrackBack URI

Leave a comment

Bjarni Jens Kristinsson | bjarni.jens(hja)gmail.com | Fjallið is powered by Wordpress | WordPress Themes