Þar sem fjallalömbin beita

Kallt land

Úti er kallt. Það rignir, snjóar og haglar. Allt í senn. Það skiptast á skin og skúrir. Skýin eru fastagestir en sóliin er spari. Oftar en ekki er dimmt og drungalegt, rétt eins og í hryllingsmynd. Það eru engin börn úti að leika sér, engir foreldrar að viðra hundinn sinn og engin gamalmenni í göngutúr. En það eru jepplingar og fólksbílar, mótórhljól og vörubílar sem aka um með hávaða og mengandi pústurör.

Úti eru fjöll og eyðilendi, mýri og grjót út um allt. Enginn fallegur, grasgrænn og líflegur gróður sem tekur vel á móti sumrinu. Því sumrið kemur ekki. Það er vetur allt árið í kring. Snjór og rigning, ský og myrkur. Búðirnar selja bara húfur, vettlinga. úlpur og ullarsokka.

Úti eru Evrópumenn. Þeir eiga evruna og góða veðrið.
Inni eru Íslendingar. Þeir vilja evruna og góða veðrið.

3 Comments

  • By Halldór Eldjárn, November 13, 2008 @ 22:45

    epík!

    og er ég vandræðalega eini kommentistinn á þessari síðu? :D

  • By bjarni, November 14, 2008 @ 16:41

    Nei blessaður, og velkominn á fjölmiðilinn minn Halldór!
    Satt er það að ég eigi vandræðalega fáa kommentísta á síðunni minni, en ég skal joina þig, ekki málið. Ég stend núna í viðræðum við Nova um að birta fréttir frá mínum fjölmiðli í stað mbl.is á forsíðu sinni og vonast ég við miklu kommenta-bústi eftir að við náum samkomulagi.

  • By Halldór Eldjárn, November 17, 2008 @ 14:14

    Það er eitthvað ótrúlega dodgy við að kalla bloggsíðuna sína fjölmiðil :D Ég kemst ekki yfir það :P

Other links to this post

RSS feed for comments on this post. TrackBack URI

Leave a comment

Bjarni Jens Kristinsson | bjarni.jens(hja)gmail.com | Fjallið is powered by Wordpress | WordPress Themes