Þar sem fjallalömbin beita

Brátt kemur

…sól og sumar, sól og skin, sól og Sinni á móti Konna. Brátt fara endurnar á haf út, mömmurnar á eftir en feðurnir heima sofandi. Brátt staðnar heimurinn því brátt er maí í land runninn. Fögnum og gleðjumst, því maí er gulur mánuður, mánuður ástar og umhyggju, blómstrun og fegurðar. Í maí gerast merkir hlutir, gras fer að grænka og blómin springa, börn leika sér og börn eiga afmæli.

Gleðilegan síðasta apríl! Maí er á morgun!

Baráttukveðja

Ég bið ykkur að lifa heil. Örvæntið ei þótt lífið virðist dapurlegt.
Myrkrið er alltaf dimmst fyrir sólarupprás. Það kemur dagur eftir þennan dag.

Við vitum að ástandið á Íslandi er dapurlegt.
Við lifum einungis á fornri frægð, í skugga sólarinnar.

Fyrir ykkur sem ætlið að leggja í ferðalag handan hólsins.
Vil ég segja það eitt: Góða ferð!

Farið og eigið góðan dag. Komið svo heim með sólskinsbros.
Smitið af ykkur, kætið okkur og syngið! Svo megið þið aftur fara.

Mun þá sá tími kominn vera. Er menn, dýr og plöntur sitja saman við borð.
Kallar þá yfir okkur, hátt að ofan, “Farið og gleðjist, eigið góðan dag!”.

Þá fóru allir. Og komu ekkert heim.
Því þá var sumar, og viti menn.

Hamingjan hafði talað.

Umfjöllun* dagsins

Í daglegu tali er talað um Fjall og þykir sumum kannski ljótt að segja umFjöllun þar sem það lútir ekki almenn(ilegu)um íslenskum beygingarreglum. Ég bið ykkur að lifa vel og kíkja jafnvel upp á Fjall í heimsókn ef þið eigið e-ð vantalað þessa efnis.

Fjall þessa dags er Ísland – land hinna uppfokkaða hluta.
Forsagan er þekkt en veit fólk hins vegar hvað er í raun að gerast í undirheimum? Hver barði hvern og hversvegna? Hver var það sem seldi kókið og hver er heildsali e-pillanna? Ætla rétt að vona að þið vitið þetta ekki – enda ekkert merkilegt. Þegar þetta er skrifað eru komin 98 orð sem má teljast nokkuð gott miðað við síðustu skrif. Bind ég vonir við að fjöll komandi tíma verða stór, vegleg og farsæl.

Ekki þarf að segja neinum að mikil verðbólga er á Íslandi. Þegar ég smakkaði minn fyrsta íslenska snúð með súkkulaðikremi kostaði hann einn gullfísk. Í Korninu í Lækjargötunni hefur hann hækkað um annan – eða svo gott sem. Hvað er ást? Ekki meiða mig lengur!

Þetta eru kvalir sem rista djúpt. Í æsku var mér kennt að hér var allt gott og blessað, á Íslandi bjó hamingjusama fólkið og hér voru menn hraustir og tóku lýsi. Börnin léku sig á sprungnu götunum og enginn kippti sér upp við vind né rok.

Íslendingar hafa lengið vel gengið á tveimur fótum en mér líður eins og sumum hafi leiðst það og farið niður á alla fjóra. Við það hefur myndast örtöð á gangbraut Íslendinganna með þar til gerðum keðjuverkandi töfum og biðraðamyndun í framfaragöngu hópsins. Ekki er heldur hægt að finna þessa sökudólga því þeir skýla sér á bakvið mannþröngvan á öllum fjórum; hniprandi og skælandi.

Svo við tökum þetta saman.
- Fyrir útlendinga: Komið og heimsækið okkur! Við þurfum þess nauðsynlega upp á efnahaginn og þið verðið aldrei aftur leið því þið getið alltaf hugsað til aumingja Íslendinganna sem hafa það verr en þið!
- Fyrir Íslendinga: Flýið sökkvandi skip eða drullist til að fylla upp í götin!

*Halldór átti þennan, var ekki búinn að fatta þetta sjálfur :D Merci!

Sjitt

Kreiiiiisí sjítt í gangi hérna! Eldur og bylting! Bekkir brenndir! Gluggar brotnir! Og laganna verðir grýttir! Hvað í djéskotanum gerðu þeir?! Nákvæmlega! Ekki neitt! Svo eru brjálaðir atvinnumótmælendur að kvarta undan piparúða!

Auðvitað á ríkisstjórnin að víkja eins og hún virðist vera að gera en ég bara .. löggan?! Almannaeigur?! Dabbelví-té-eff!

Einu rökin sem ég sá við að kjósa í vor voru að þá gæti ég lagt hönd á plóg við að losa okkur við Sjálfstæðisklíkuna og þar með seðlabankastjóra, en svo heyri ég að Geir segist vilja kjósa 9. maí. Já, 9. maí! Himnaríki og helvíti! Af öllum þeim mistökum sem hafa verið gerð á undanförnum árum þá eru þessi með þeim stærri.

Gratz á þann sem skilur afhverju.

Árið 2008

Sæl öll! Bað WP að birta þetta 31. desember 2008 kl. 23:59 til að vera flottur á tímasetningunni en í rauninni er ég úti að horfa á flugelda þegar þetta droppar inn á síðuna svo ég á ekki gratz skilið fyrir tímasetninguna. Bara svo þið vitið.

…Eeeeen eins og Ríkisútvarpið og fleiri flottir fjölmiðlar ætla ég að fjalla um árið sem var að líða og taka út markverðustu atburðina.

  • 25. febrúar. Undrabarnið Bjarni Jens Kristinsson er krýndur skákmeistari Hellis 2008 – sá yngsti í sögu félagsins en Hellir var stofnað um það leyti sem drengurinn fæddist.
  • 2. júní. Bjarni og Gráni hittast í fyrsta sinn. Ástin leynir sér ekki og eiga þeir tveir farsælt sumar saman hjá Skógrækt Ríkisins á Hallormsstað þar sem þeir binda vinabönd til lífsstíðar.
  • 21. ágúst. Valdafíkn borgarfulltrúa Reykjavíkur nær hámarki þegar Hanna Birna tekur við sem fjórði borgarstjórinn á kjörtímabilinu.
  • 4. október. Damien Rice Fanclub litar heiminn – enn á ný sem enginn væri morgundagurinn.
  • 6. október. Aðalútibú Landsbankans í Austurstræti var lokað vegna aðstæðna á fjármálamarkaði. Þetta olli mikilli gremju meðal menntskælinga sem sóttu reglulega staðinn til að fá sér frítt kakó.
  • 21. desember. Jólaball Menntaskólans í Reykjavík. … Það var osom.

Ég þakka ykkur fyrir liðið ár og vona að 2009 verði jafn gott eða betra fyrir okkur öll.

Fjallið

Þegar Íslandsbanki tók upp nýtt nafn og lógó í Mars 2006 og kallaði sig Glitni kostaði það fyrirtækið hef ég heyrt 300 miljónir krónur. Nú ætla ég að gera það sama nema ég hef ekkert lógó að skipta út og engum peningum að sóa. Ég ætla einfaldlega að nefna fjölmiðil minn Fjallið.

Nafnið skírskotar í svo margt. Það fer ekki framhjá neinum á þessu hrjúfa landi að það eru fjöll út um allt, grjót, mýrlendi, vötn og lækir. Ekki skemmir heldur fyrir að lénið sem ég nota er fjall.org, en með því að bæta greininum við er ég að segja að ég sé aðalsíða fjallsins – hliðin sem allir sjá. Bróðir minn settist að í skugganum hinum megin fjallsins að rækta gúrkur, hann er gúrkubóndi púnktur net.
Svo megum við ekki gleyma Eyjunni. Með nafninu gefa þeir í skyn að þeir séu allsstaðar – á allri eyjunni og geta því tekið eftir öllu, en ég sé tiss við því. Ég er á fjallinu – þar sem ég sé allt og allir sjá mig.

Verið velkminn upp á Fjallið!

Tilkynning frá ritstjóra

Rétt í þessu barst okkur tilkynning frá ritstjóranum sem hann sagði brýnt að birta hið allra fyrsta. Því er hún er ekki ritstkoðuð heldur verður birt í heild sinni á ábyrgð ritstjóra.

Vegna umtal síðustu vikna um stöðu Ríkisútvarpsins á auglýsingarmarkaði og annarra einkarekinna fjölmiðla vill ég fyrir hönd þessa fjölmiðils taka það fram að staða okkar er mjög sterk. Verðum við ekki varir við minni eftirspurn eftir auglýsingum og reiknum við ekki með að þurfa að reka starfsfólk né standi í annars konar niðurskurði. Þótt samkeppnin er hörð á markaðinum mun ég ábyrgjast áframhaldandi fréttaflutning og halda áfram að birta efni í sama gæðaflokki og áður hefur þekkst. Munum við ekki lúta fyrir hnignandi krónu eða glæfrafjárfestum né kapítalístískum hugsunarháttum heldur stöndum við sterk saman með hagsmuni hins almenna skattgreiðenda að leiðarljósi.

Virðingarfyllst,
Bjarni Jens Kristinsson
ritstjóri bjarni.fjall.org

Heppni manns stolin í Garðabæ

Aðfaranótt fimmtudagsins 4. desember 2008 var brotist inn í íbúð í Garðabæ og heppni manns stolin. Engin ummerki eru um glæpin en fórnarlambið, sem ekki vill láta nafn sitt getið og verður kallaður Bjarni Jens Kristinsson, segist vera mjög gáttaður á þessu athæfi. Fjölmiðillinn bjarni.fjall.org náði tali af honum rétt í þessu.

“Ég verslaði sænskar krónur sl. mánudag þegar ég frétti að krónan ætti að fara á flot. Þegar ég vakna í morgun sé ég að íslenska krónan hafi styrkst umtalsvert þvert á allar spár og voru því þessi kaup afskaplega óheppileg. Ekki nóg með það, heldur datt ég um þröskuldinn og er kominn með skemmdar tær. Það var einmitt þá sem ég áttaði mig á heppni mín hafi verið stolin um nóttina. Hringdi ég strax í lögreglu og tilkynnti um þetta nema ég var náttúrulega inneignalaus og þurfti því að hlaupa út í búð að kaupa mér inneign en á leðinni renn ég í hálku og fótbrýt báðar fætur, hendur og bak.”

Segist hann vera á leið til Svíþjóðar um jólin svo framarlega sem hann verði búinn að ná fullum bata fyrir þann tíma. Að lokum vill Bjarni taka fram að hver sá sem hafi stolið heppni hans er vinsamlegast beðinn um að skila henni sem allra fyrst, enda telur hann að það litla sem til var af henni muni ekki gagnast neinum.

Kallt land

Úti er kallt. Það rignir, snjóar og haglar. Allt í senn. Það skiptast á skin og skúrir. Skýin eru fastagestir en sóliin er spari. Oftar en ekki er dimmt og drungalegt, rétt eins og í hryllingsmynd. Það eru engin börn úti að leika sér, engir foreldrar að viðra hundinn sinn og engin gamalmenni í göngutúr. En það eru jepplingar og fólksbílar, mótórhljól og vörubílar sem aka um með hávaða og mengandi pústurör.

Úti eru fjöll og eyðilendi, mýri og grjót út um allt. Enginn fallegur, grasgrænn og líflegur gróður sem tekur vel á móti sumrinu. Því sumrið kemur ekki. Það er vetur allt árið í kring. Snjór og rigning, ský og myrkur. Búðirnar selja bara húfur, vettlinga. úlpur og ullarsokka.

Úti eru Evrópumenn. Þeir eiga evruna og góða veðrið.
Inni eru Íslendingar. Þeir vilja evruna og góða veðrið.

Fréttir frá heimsmeistaraeinvíginu

Góðar fréttir að því er mér finnst. :-) Viswanathan Anand, núverandi heimsmeistarinn í skák, var rétt í þessu að leggja Vladimir Kramnik, áskorandann, að velli í 5. einvígisskák þeirra af 12. Þegar hafði hann unnið þá þriðju en hinar þrjár enduðu allar með jafntefli. Athygli vekur að Anand vann Kramnik í nákvæmlega sömu byrjun og áður nema núna betrumbætti hann 15. leik sinn; 15. … Hg8 í stað Bd6. Staðan í einvíginu er því 3.5 – 1.5 Anand í vil.

Fyrir áhugasama vill ég benda á stórgóða lýsingu búlgarska stórmeistarans Vladimir Dimitrov hjá chessdoom á skákum einvígisins. T.d. 5. skákin; http://live.chessdom.com/kramnik-anand-2008-g5.html.

Bjarni Jens Kristinsson | bjarni.jens(hja)gmail.com | Fjallið is powered by Wordpress | WordPress Themes